Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest

01.12.2014

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest bann Neytendastofu við birtingu Tæknivara á auglýsingu um Samsung Galaxy S4 farsíma.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu í ákvörðun sinni að auglýsingin vísaði á neikvæðan hátt til vörumerkisins Apple auk þess sem yfirskrift auglýsingarinnar „sími sem skilur þig“ gæfi með villandi hætti til kynna að að símar frá Apple skilji ekki íslenskt ritmál.

Úrskurð áfrýjunarnefndar má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA