Innköllun á Esska snuðhöldurum í Lindex
29.12.2014
Neytendastofa vekur athygli á að Lindex hefur innkallað snuðhaldara frá Esska, vörunúmer 7163714, þar sem að hann uppfyllir ekki gæða- og öryggisskilyrði. Ástæða innköllunarinnar er sú að gormur sem er í snuðhaldaranum kann, undir ákveðnum kringumstæðum, að losna og getur fests í hálsi barna og þar með valdið köfnunarhættu.
Lindex fer því þess á leit við þá viðskiptavini sína sem keypt hafa umræddan snuðhaldara að snúa sér til næstu verslunar Lindex og fá endurgreitt að fullu. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Esska http://www.esska.nu/sv/ og hjá verslunum Lindex.