Hekla hf innkallar VW Polo GP bifreiðar
23.01.2015
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf að innkalla þurfi VW Polo GP bifreiðar af árgerðinni 2015.
Ástæða innköllunarinnar er að bilun á hröðunarskynjara í stjórnboxi fyrir loftpúða getur valdið því að loftpúðakerfi virki ekki sem skyldi, þannig að ekki er öruggt að púðar blásist út við réttar aðstæður eða sendi röng skilaboð í mælaborð um bilun í kerfinu. Viðgerð felst í því að skipt verður um loftpúðastjórnbox.
Tveir bílar á Íslandi eru innan þess framleiðslutímabils sem um ræðir og hefur eigendum þeirra verið tilkynnt um þessa innköllun.