Toyota innkallar 5KET-012 á 4 Yaris bifreiðum
27.02.2015
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 4 Yaris bifreiðar. Ástæða innköllunar er að mögulegt er að einn eða fleiri festiboltar af fjórum fyrir hjólnaf á afturhjóli séu ekki rétt hertir og geti losnað við notkun bílsins. Losni bolti er hætta á að hann skaði hemlahluti í hjólinu og hemlageta bílsinns minnki eða að hjólið festsist en hvorutveggja getur skapað hættuástand.
Eigendum verða send bréf vegna þessarar innköllunar.