Fara yfir á efnisvæði

Seinni ferð Neytendastofu í bakarí

30.04.2015

Neytendastofa fór í bakarí á höfuðborgarsvæðinu í febrúar sl. til að kanna hvort verðmerkingar væru í samræmi við lög og reglur. Því var svo fylgt eftir í núna í apríl með seinni heimsókn í þau 13 bakarí sem Neytendastofa hafði áminnt eftir fyrri könnun. Sjö bakarí höfðu komið verðmerkingum í sínum í lag en hjá Fjarðarbakarí Kirkjustétt, Sveinsbakarí Hólagörðum, Jóa Fel Litlatúni, Bakarameistaranum í Suðurveri, Glæsibæ og Húsgagnahöllinni var verðmerkingum enn ábótavant. Tekin verður ákvörðun í framhaldinu hvort beita skuli þessar verslanir sektum fyrir að virða að vettugi tilmæli og ábendingar Neytendastofu um úrbætur á ástandi verðmerkinga.

Neytendastofa hvetur neytendur til að vera á verði og koma ábendingum til skila í gegnum Mínar síður á heimasíðunni neytendastofa.is.

TIL BAKA