Fara yfir á efnisvæði

Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfestir ákvörðun Neytendastofu

13.05.2015

Isavia ohf. hafði kvartað til Neytendastofu vegna notkunar Húsbílaleigunnar ehf. á heitinu „Keflavík Airport Car Rental“ og léninu keflavikairportcarrental.is. Með ákvörðun Neytendastofu nr. 37/2014 var ekki talið tilefni til aðgerða vegna kvörtunarinnar. Isavia kærði ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála. Áfrýjunarnefndin lagði til grundvallar að þrátt fyrir að nafn flugvallarins kæmi fyrir í auðkenni Húsbílaleigunnar væru auðkenni Isavia í heild sinni ólíkt auðkenni Húsbílaleigunnar. Fyrirtækin byðu ekki þjónustu á sama markaði og væru því ekki keppinautar. Ekki lægi annað fyrir sem rennt gæti stoðum undir að notkunin kynni að valda ruglingshættu eða slíkur ruglingur hafi yfir höfuð átt sér stað. 

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér. 

TIL BAKA