Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar Subaru Impreza XV bifreiðar

26.06.2015

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. að innkalla þurfi 15 Subaru Impreza XV bifreiðar af árgerðinni 2012. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að þegar setið er í farþegasæti og aukahlutur er tengdur við 12V notenda innstungu bifreiðar t.d. Ipod eða snjallsíma og viðkomandi snertir járn íhluti bílsins sem er jarðtengdur (t.d sætisgrind / handföng fyrir fram/aftur hreyfingu sætis) getur skynjunarkerfi í setu farþegamegin mistúlkað boð frá setuskynjara með þeim afleiðingum að skynjunarkerfið slökkvi á sér. Ef þetta gerist mun aðal loftpúðaljós kvikna og ljós fyrir loftpúða farþegamegin sýna OFF og er þá möguleiki á að loftpúði farþegamegin virkist ekki ef óhapp á sér stað. Skipta skal út stjórnboxi fyrir skynjunarkerfi í farþegasæti.

BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessara innkallanna.

TIL BAKA