BL ehf innkallar Nissan Note og Nissan Leaf bifreiðar
30.06.2015
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf að innkalla þurfi fimm Nissan Note og 30 Nissan Leaf bifreiðar af árgerðinni 2013-2014. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að ræsihnappur standi á sér og fari ekki tilbaka þegar ýtt er á hann í starti. Ef bifreið er ekið með takkann í þessari stöðu getur neyðarstopp vélar virkjast og vél drepið á sér. Laga skal afstöðu á startrofa.
BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessara innkallanna.