Fara yfir á efnisvæði

Verðmerkingar og vínmál í Hveragerði og á Selfoss

17.07.2015

Neytendastofa skoðaði í Hveragerði og á Selfossi verðmerkingar og hvort að vínmál á veitingastöðum væru lagi. Farið var á þrjá veitingastaði í Hveragerði og þrjá á Selfossi. Kannað var hvort matseðill væri við inngang og magnupplýsingar drykkja kæmu fram á matseðli. Af þessum sex veitingastöðum voru allir með matseðil við inngang og aðeins tveir ekki með magnupplýsingar drykkja á matseðli. Af þeim sex veitingastöðum sem skoðaðir voru reyndust fimm þeirra nota veltivínmál (sjússamæla) sem ekki voru löggiltir eða á Surf and Turf Austurvegi, Riverside á Hótel Selfoss, Menam Eyrarvegi, Hoflandsetrið Breiðumörk og Hótel Örk í Hveragerði.

Farið var í fimm sérvöruverslanir í Hveragerði og 18 á Selfossi og athugað hvort verðmerkingar í verslun og sýningargluggum væru í lagi. Verðmerkingar í verslununum Blómaborg í Hveragerði og A4, Tölvulistinn, Tölvu- og Rafeindaþjónusta Suðurlands og Árvirkinn á Selfossi voru ekki í lagi. Hjá tískufataversluninni Barón, barnafataversluninni Do Re Mí, Gallerí Ozone á Selfossi og Blómaborg í Hveragerði vantaði verðmerkingar í sýningarglugga.

Tvær ísbúðir voru skoðaðar á svæðinu, Ísbúð Huppu á Selfossi og Gottís í Hveragerði, athugasemd var gerð við báðar ísbúðirnar þar sem kælar með gosi og öðrum vörum voru alveg óverðmerktir á báðum stöðum.

Einnig var farið var í tvö bakarí á Selfossi og eitt í Hveragerði. Athugasemd var gerð við Guðnabakaríi þar sem goskælir var óverðmerktur og verð vantaði á kökur í og ofan á afgreiðsluborði. Í bakaríinu Almar Bakari á Selfossi voru vörur í kæli óverðmerktar.

Neytendastofa mun halda áfram verðmerkinga- og verðkannanaeftirliti sínu og gera athugun hjá fleiri verslunum. Neytendur geta komið ábendingum á framfæri í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni neytendastofa.is.

TIL BAKA