Toyota innkallar 5450 bifreiðar
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 5450 Yaris, Corolla, Avensis og Lexus SC430 bifreiðar af árgerðum 2003-2008. Ástæða innköllunarinnar er galli í öryggispúðum, röng hleðsla í drifbúnaði öryggispúðanna getur rifið gat á drifbúnaðinn sjálfan sem veldur því að púðinn blæs ekki rétt út við árekstur og virkni hans verður ekki eins og til er ætlast.
Þessi innköllun er á heimsvísu og hér á landi gætu verið Toyota bílar af gerðunum Tundra og Sequoia framleiddir í Bandaríkjunum með þessari gerð af öryggispúðum.
Eigendur slíkra bíla geta snúið sér til næsta Toyota þjónustuaðila sem getur aflað upplýsinga um hvaða Toyota bílar framleiddir í Bandaríkjunum eru í þessari innköllun.
Eigendum verða send bréf vegna þessarar innköllunar.