Toyota innkallar 119 Aygo bifreiðar
29.07.2015
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 119 Aygo bifreiðar af árgerðinni 2014-2015. Ástæða innköllunarinnar að leiðsla í sætishitara í bílstjórasæti getur nuddast við sætisgrind og leitt til jarðar og brent öryggi, við það slöknar á afrurljósum og númersljósum sem eru á sama öryggi.
Eigendum verða send bréf vegna þessarar innköllunar.