BL ehf innkallar Range Rover bifreiðar
31.07.2015
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. að innkalla þurfi 29 Range Rover bifreiðar af árgerðinni 2013-2016. Ástæða innköllunarinnar er að það getur gerst að hurðir bílanna lokist ekki tryggilega sem getur haft þær afleiðingar að þær opnist á ferð. Það þarf að endurforrita stjórnbox fyrir lyklalaust aðgengi. Um er að ræða 18 Range Rover og 11 Range Rover Sport.
BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessara innköllunar.