Toyota innkallar 3563 bifreiðar
11.08.2015
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 2899 Yaris og 664 Hilux bifreiðar af árgerðum 2006-2011. Ástæða innköllunarinnar er galli í öryggispúðum, gallinn felst í því að röng hleðsla í drifbúnaði öryggispúðanna getur rifið gat á drifbúnaðinn sjálfan sem veldur því að púðinn blæs ekki rétt út við árekstur og virkni hans verður ekki eins og til er ætlast.
Eigendum verða send bréf vegna þessarar innköllunar.