Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa leitar upplýsinga um handblys

04.01.2016

Neytendastofa óskar eftir upplýsingum og aðstoð vegna slysa sem urðu vegna handblysa um áramótin. Í fjölmiðlum hefur komið fram að alls hafi 7 börn slasast vegna handblysa og grunur er um að þau hafi verið gölluð. Stofnunin þarf nánari upplýsingar um hvaða tegund handblysa sé um að ræða, sölustaði og annað sem getur komið að gagni við meðferð málsins. Skotelda má selja fram til 6. janúar og því sérstaklega mikilvægt að upplýsingar um framangreind handblys berist Neytendastofu eins fljótt og unnt er.

Símanúmer Neytendastofu er 510 11 00 og einnig er unnt að senda upplýsingar á postur@neytendastofa.is

TIL BAKA