Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar Nissan X-Trail bifreiðar

26.07.2016

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 77 Nissan bifreiðum árgerð 2014- 2015, af tegundinni X-Trail. Ástæða innköllunarinnar er að komið hefur fram í gæðaeftirliti Nissan galli í ryðvörn á hlerapumpum fyrir afturhlera. Ryð getur myndast á demparahulsu vegna ónógrar ryðvarnar við framleiðslu. Möguleiki er á að hlerapumpa losni frá eða brotni, og þrýstingur falli þannig að hlerapumpa og stuðningur við afturhlera verði óvirkur. Aðeins hefur orðið vart við þennan galla í Japan, en öryggis vegna hefur Nissan ákveðið að kalla einnig inn Evrópubíla.

BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA