Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. innkallar Land Rover

19.08.2016

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 120 Land Rover bifreiðum. Um er að ræða Land Rover Discovery Sport og Range Rover Evoque bifreiðar framleiddar á árinu 2016. Ástæða innköllunarinnar er sú að hætta er á að plasthlíf sem er ofaná vélinni geti rekist í eldsneytisleiðslu vélarinnar með þeim afleiðingum að gat geti komið á hana með tímanum. Það getur haft í för með sér að fólk verði vart við eldsneytislykt og ef ekki er brugðist við er hætta á íkveikju. Lagfæra plasthlíf og meta ástand á eldsneytisleiðslu. Skipta um eldsneytisleiðslu ef þarf, skv framleiðanda er um 1% líkur á að skipta þurfi um hana vegna skemmda.

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf frá BL vegna þessarar innköllunar.

Eigendum bíla sem fluttir hafa verið inn af öðrum en BL er bent á að hafa samband við BL ehf. til að kanna hvort þeirra bíll falli undir þessa innköllun.

TIL BAKA