BL ehf. innkallar bifreiðar
29.08.2016
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 12 Renault og Dacia bifreiðum. Um er að ræða Dacia Dokker, Renault Megane IV og Renault Talisman bifreiðar framleiddar á árinu 2016. Ástæða innköllunarinnar er sú að örlítill möguleiki er á að ABS/ESP dæla í bílnum bremsi ekki nægilega vel þegar bremsa þarf bílinn. Skipta þarf um ABS dæluna í bílnum.
Haft verður samband við viðkomandi bifreiðareigendur í gegnum síma.