Toyota innkallar Prius og Lexus
15.09.2016
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um innköllun á 2 Prius og 2 Lexus bifreiðum árgerð 2016. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að öryggispúði fyrir farþega í framsæti getur blásið út að ástæðulausu. Ástæðan er að þrýstihylki í drifbúnaði öryggispúðans getur farið að leka og þá blæs púðinn út að hluta. Þessi innköllun er ekki tengd Takata öryggispúðum.
Toyota mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.