Fara yfir á efnisvæði

Brimborg innkallar Volvo

27.09.2016

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf varðandi innköllun á 176 Volvo bifreiðum af gerðinni XC90, framleiðsluár 2016 - 2017. Ástæða innköllunarinnar er sú að hugsanlegur samsetningargalli á affalsröri fyrir AC-kerfi getur leitt til leka inn í bíl. Ef lekur inn í bíl er hætta á rafmagnsbilunum.

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf frá Brimborg ehf vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA