Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar Grillbúðina

03.10.2016

Neytendastofa hefur lagt 500.000 kr. stjórnvaldssekt á verslunina Grillbúðin fyrir að auglýsa grill á afmælistilboði lengur en heimilt er. Grillbúðin bauð grillin á lækkuðu verði í a.m.k. 9 vikur. Þegar vara hefur verið auglýst á tilboði í sex vikur er ekki hægt að segja að hún sé á tilboðsverði.

Auk þess að brjóta gegn reglum sem gilda um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði, hefur Grillbúðin jafnframt brotið gegn eldri ákvörðun Neytendastofu frá árinu 2012. Þótti Neytendastofu af þessu tilefni nauðsynlegt að leggja stjórnvaldssekt á fyrirtækið.

Ákvörðunina má nálgast hér.

TIL BAKA