Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar Corolla

12.10.2016

Lógó toyotaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um innköllun á 27 Toyota Corolla bifreiðum árgerð 2002 og 2003. Innköllunin er vegna hliðaröryggispúða í ökumannssæti. Við árekstur sem er nógu harður til að öryggispúðinn eigi að blása út er mögulegt að drifbúnaðurinn fyrir púðann rifni og púðinn veiti ekki þá vernd sem honum er ætlað.

Toyota mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA