Fara yfir á efnisvæði

Hekla innkallar Audi Q7

25.10.2016

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi Audi Q7 bifreiðar með 7 sætum, framleiddar frá janúar 2015 til júlí 2016. Ástæða innköllunar er sú að aftasta sætaröðin getur færst til við árekstur. Lagfæring felst í því að bæta styrkingu við öftustu sætaröðina.

Á Íslandi eru 39 bílar sem falla undir þessa innköllun og verður eigendum þeirra sent bréf vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA