Fara yfir á efnisvæði

Viðskiptahættir Graníthallarinnar bannaðir

28.03.2017

Neytendastofa hefur í kjölfar kvartana frá neytendum yfir langvarandi tilboðsauglýsingum Graníthallarinnar eins og „Vegna mikilla eftirspurnar framlengjum við „allt innifalið“ tilboðið á öllum legsteinum“. Farið fram á að fyrirtækið færi sönnur á að vörur í auglýsingunum hafi verið seldar á tilgreindu fyrra verði. Neytendastofu taldi gögn og skýringar félagsins ófullnægjandi og ekki leiða til þess að sýnt hafi verið fram á að um raunverulega verðlækkun væri að ræða.

Neytendastofa taldi einnig villandi að yfirskrift auglýsinganna væru sú að allt væri innifalið í tilboðinu. Til viðbótar kynntu verði þurfi annars vegar að greiða fast akstursgjald og hins vegar uppsetningu, búi neytendur utan höfuðborgarsvæðisins, og sé fyrirvari þar um í afar smáu letri borið saman við aðrar upplýsingar sem fram komi í auglýsingunni. Neytendastofa bannaði því Graníthöllinni að viðhafa slíka viðskiptahætti.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA