Fara yfir á efnisvæði

Flugeldasalar verða að laga sölusíður sínar

19.04.2017

Neytendastofu barst fyrir síðustu áramót nokkur fjöldi ábendinga vegna útsölu hjá flugeldasölum. Í kjölfarið kannaði Neytendastofa sölusíður og auglýsingar fjölda aðila á flugeldamarkaðnum.

Neytendastofa lauk málum gagnvart sölusíðunum Gullborg, Alvöru flugeldar, Súperflugeldar, Stjörnuljós.is, Flugeldakaup.is og Flugeldasala.is með ákvörðun. Ákvarðanirnar fjölluðu ýmist um villandi tilboðsverðum eða upplýsingaskorti á vefsíðum fyrirtækjanna. Beindi Neytendastofa því til fyrirtækjanna að laga viðskiptahætti sína fyrir næsta sölutímabil að viðlögðum sektum.

Þegar verið er að selja vörur á netinu þá er mikilvægt að seljendur gefi fullnægjandi upplýsingar. Neytendur eiga að geta auðveldlega séð frá hvaða aðila þeir eru að kaupa vöruna því eiga að koma fram allar upplýsingar um seljanda t.d. nafn, kennitala, heimilisfang, virðisaukaskattsnúmer o.fl. Einnig þurfa að koma fram upplýsingar um vörunar þar sem neytendur sjá ekki vöruna þegar hún er keypt heldur aðeins þær upplýsingar sem koma fram á sölusíðunum.

Þar sem sölutímabil flugelda er stutt eða frá 28. desember til 6. janúar er oft erfiðara fyrir flugeldasala að bjóða afslátt eða kynningartilboð. Sömu reglur gilda um markaðssetningu hvort sem varan er seld í stuttan tíma eins og með flugelda eða hvort um sé að ræða vöru sem seld er allt árið. Vara verður að hafa verið seld á því verði sem auglýst er sem fyrra verð.

Neytendastofa mun halda áfram fylgjast með auglýsingum flugeldasala á næsta sölutímabili til þess að tryggja eðlilega viðskiptahætti gagnvart neytendum.

Ákvarðanirnar má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA