Fara yfir á efnisvæði

Tímabundið sölubann á „spinnera“

01.06.2017

FréttamyndNeytendastofa hefur lagt á tímabundið bann hjá þremur innflytendum hér á landi við sölu og afhendingu á spinnerum vegna skorts á merkingum og upplýsingum um vöruna. Spinnerarnir sem um ræðir eru ekki CE-merktir og bera ekki varúðarmerkingar í samræmi við gildandi reglur um leikföng. Ríkar kröfur eru gerðar varðandi framleiðslu leikfanga s.s. efnainnihald, kröfur um að smáir hlutir losni ekki frá og skapi köfnunarhættu o.fl. Innflytjendur hafa ekki á þessu stigi máls lagt fram gögn sem sýna fram á öryggi vörunnar í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Neytendastofa og önnur stjórnvöld sem fara með eftirlit með öryggi vöru á Evrópska efnahagssvæðinu eru um þessar mundir að fjarlæga af markaði spinnera sem ekki fullnægja kröfum. Mörg hundruð þúsund eintök hafa verið tekin af markaði að undanförnu vítt og breitt á Evrópska efnahagssvæðinu og vörum einnig vísað frá í tolli í EES-ríkjum. Neytendastofa vill hvetja almenning og forráðamenn að huga að því að á þessu stigi er ekki vitað um hvaða efni eru í vörunum og tilkynningar hafa borist stjórnvöldum um að smáir hlutir hafi losnað.
Nánari upplýsingar er unnt að fá hjá Neytendastofu postur@neytendastofa.is.

TIL BAKA