Ákvörðun Neytendastofu staðfest
19.07.2017
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 62/2016. Ákvörðunin snéri að broti Hópkaupa á útsölureglum þar sem ekki var sýnt fram á raunverulega verðlækkun á ljósmyndanámskeiði. Með ákvörðuninni var lögð 250.000 kr. sekt á Hópkaup.
Úrskurð áfrýjunarnefndar má lesa í heild sinni hér.