Fara yfir á efnisvæði

Tölvulistinn sektaður

06.10.2017

Neytendastofa hefur lagt 700.000 kr. stjórnvaldssekt á Tölvulistann fyrir að brjóta gegn útsölureglum. Málið hófst með þríþættri kvörtun Tölvutek yfir háttsemi Tölvulistans í tengslum við verðlækkanir. Í fyrsta lagi var kvartað yfir villandi framsetningu á verðlækkun á borðtölvum og að þær hafi verið boðnar á lækkuðu verði lengur en í lögboðnar sex vikur. Í öðru lagi að auglýsingar um allt að 70% verðlækkun væru villandi því um væri að ræða örgjörva frá árinu 2010 sem í öllu falli hafi ekki verið seldur á tilgreindu fyrra verði um nokkurra ára skeið. Í þriðja, og síðasta, lagi yfir villandi framsetningu á verðlækkun á tiltekinni fartölvu og að hún hafi verið boðin á lækkuðu verði lengur en í sex vikur.
Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að Tölvulistinn hafi brotið gegn góðum viðskiptaháttum í öllum tilvikum þar sem fyrirtækinu tókst ekki að sýna fram á með fullnægjandi hætti að um raunverulega verðlækkun væri að ræða.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA