Mía snudduband
20.10.2017
Neytendastofa hefur borist tilkynning um að sölu hafi verið hætt á Mía snudduböndum. Komið hefur í ljós að klemman á böndunum er ekki í lagi og getur verið hættuleg börnum. Ef klemman brotnar þá geta smáir hlutir valdið köfnunarhættu.
Fram kemur í tilkynningunni að hægt sé að skila snuddubandinu í versluninni Fífu. Ekki er vitað um nein slys á börnum hér á landi af völdum Míu snuddubanda en engu að síður hvetur Neytendastofa foreldra til að hætta að notkun þeirra strax.