Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Kia Picanto TA

11.09.2018

lógó bílaumboðið AskjaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju að innkalla þurfi 64 Kia Picanto TA af  bifreiðar af árgerðinni 2011-2012. Ástæða innköllunarinnar er að eldsneytishosur milli eldsneytistanks og áfyllingarrörs gætu verið gallaðar og valdið leka. Viðgerð felst í því að skipt verður um eldsneytishosur. Aðgerð er eigendum að kostnaðarlausu og tekur u.þ.b.1 klst. Eigendum þessara bifreiða verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.   

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA