Fara yfir á efnisvæði

Villandi auglýsingar Sölufélags Garðyrkjumanna ehf.

09.01.2019

Neytendastofu barst erindi Innnes ehf. þar sem kvartað var yfir auglýsingaherferð Sölufélags garðyrkjumanna á innlendu grænmeti og ávöxtum. Eiga auglýsingarnar það sammerkt að viðskiptavinur gengur um verslun, tekur upp grænmeti eða ávöxt sem á stendur „Imported“ (ísl. innflutt), leggur upp að eyranu og þá heyrist ákveðin hljóð, s.s. að sturtað sé niður úr klósetti, hljóð í þungavinnuvélum og vélagný, finni ólykt svo dæmi sé tekið. Þegar sá hinn sami taki hins vegar upp vörur Sölufélags garðyrkjumanna heyrist hins vegar falleg tónlist eða brosandi veifandi bóndi og lesinn upp eftirfarandi texti.: „Grænmeti sem ber merkið okkar er ræktað með hreinu íslensku vatni. Hvaða vatn fer í gegnum grænmetið þitt? Íslenskt grænmeti, þú veist hvaðan það kemur.“

Neytendastofa taldi að þrátt fyrir að ekki væri vísað með beinum hætti til Innnes eða annarra samkeppnisaðila Sölufélags garðyrkjumanna. væri augljóst að skírskotað væri til innflutts grænmetis og ávaxta og að gefið væri í skyn að aðstæður við ræktun, hreinlætis og gæða þess væri ábótavant. Taldi Neytendastofa auglýsingarnar fælu í sér villandi samanburð, væru neikvæðar og lítilsvirðandi í garð keppinauta á markaði og með þeim væri kastað rýrð á vörur Innnes.

Neytendastofa bannaði Sölufélagi Garðyrkjumanna ehf. að viðhafa ofangreinda viðskiptahætti og beindi þeim fyrirmælum til fyrirtækisins að fjarlægja auglýsingarnar þaðan sem þeim hafði verið komið á framfæri.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA