Fara yfir á efnisvæði

Fullyrðingar Törutrix um virkni Golden Goddess andlits serum

15.01.2019

Neytendastofu barst ábending vegna fullyrðinga fyrirtækisins Törutrix ehf. um virkni vöru á þeirra vegum. Um var að ræða fullyrðingar í auglýsingum á vörunni Golden Goddess andlits serum.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar um að varan ynni gegn bólum, minnki fínar hrukkur, styrki húðina, minnki svitaholur o.fl. væru ósannaðar og veittu rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar. Með vísan til framangreinds var Törutrix bannað að viðhafa ofangreinda viðskiptahætti. Þeim fyrirmælum var beint til fyrirtækisins að fjarlægja þær auglýsingar sem innihalda umræddar fullyrðingar af þeim samfélagsmiðlum þar sem þeim hefur verið komið á framfæri.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA