Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar 429 bifreiðar.

14.03.2019

Subaru vörumerkiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi Subaru Forester og Impreza XV bifreiðar af árgerðunum 2012 til 2015. Um er að ræða 429 bifreiðar.

Ástæða innköllunarinnar er að bremsuljósarofi getur orðið óvirkur við ákveðnar aðstæður. Við innköllun verður skipt um bremsuljósarofa. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA