BL ehf. innkallar Isuzu D-Max
26.04.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi Isuzu D-Max bifreiðar af árgerð 2018. Um er að ræða 17 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að fjaðrablöð af aftan brotni við festingar. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina í gegnum síma og innköllunarbréf einnig sent.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.