Ford innkallar Mustang, Edge, Ranger og Lincoln MKX
29.04.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi Ford bifreiðar af árgerðunum 2007 til 2010. Um er að ræða undirtegundirnar Mustang, Edge, Ranger, og Lincoln MKX. Alls er um að ræða 18 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.