Hekla innkallar Audi A3
09.05.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi Audi A3 Saloon bifreiðar af árgerð 2018. Um er að ræða 2 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að lásapinna fyrir höfuðpúða í aftursæti gæti vantað. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina í gegnum síma.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.