Bílabúð Benna innkallar Opel Vivaro-B
07.06.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílabúð Benna ehf um að innkalla þurfi Opel Vivaro-B bifreið. Ástæða innköllunarinnar er að handbremsubarki getur veirð gallaður. Viðkomandi bifreiðareiganda verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.