Brimborg innkallar Volvo
22.07.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi 165 Volvo XC90 bifreiðar af árgerð 2016. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að kælivatnshosa morkni vegna hita og rakabreytinga. Viðgerð felst í að skipt verður um kælivatnshosuna í öllum bílum. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.