Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Kia Optima

06.08.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 11 Kia Optima bifreiðar af árgerðum 2019 og 2020. Ástæða innköllunarinnar er að hugbúnaðarvilla í MFC myndavél sem getur valdið truflunum á öryggisbúnaði bifreiðanna. Viðgerð felst í uppfærslu á hugbúnaði og tekur um það bil klukkustund.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA