Fara yfir á efnisvæði

Hekla hf innkallar 127 Audi Q5

14.08.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf  um að innkalla þurfi 127 Audi Q5 bifreiðar af árgerð 2015 til 2018 . Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er að hjólbogalistar geta með tímanum losnað og gætu skapað hættu fyrir aðvífandi umferð. Viðgerð tekur um það bil 1,5 klst og felst í því að bætt verður við festingu við hjólbogalista

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA