Fara yfir á efnisvæði

Bernhard innkallar 1078 Honda bifreiðar.

19.08.2019

Vörumerki HondaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bernhard ehf um að innkalla þurfi Honda bifreiðar af árgerðunum 2001 til 2012.  Um er að ræða 1078 bifreiðar af gerðunum Accord, Jazz, Civic, Steam og CR-V.k. Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata. 

Við innköllun er skipt um loftpúða farþegamegin eða ökumanns megin. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa. 

TIL BAKA