Hekla innkallar Audi Q3
21.08.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi 4 Audi Q3 bifreiðar af árgerð 2017. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að bilun í stefnuljósum gæti farið framhjá vöktunarkerfi bifreiðarinnar og viðvörunarljós birtist ekki. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.