Fara yfir á efnisvæði

Hekla innkallar Audi Q3

21.08.2019

Fréttamynd

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf  um að innkalla þurfi 4 Audi Q3 bifreiðar af árgerð 2017. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að bilun í stefnuljósum gæti farið framhjá vöktunarkerfi bifreiðarinnar og viðvörunarljós birtist ekki. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA