Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz Citan
29.08.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 24 Mercedes-Benz Citan. Ástæða innköllunarinnar er að uppfæra þarf vélartölvu til að uppfylla kröfur Euro 6B mengunarstaðalsins.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.