Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes-Benz Citan

29.08.2019

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 24 Mercedes-Benz Citan. Ástæða innköllunarinnar er að uppfæra þarf vélartölvu til að uppfylla kröfur Euro 6B mengunarstaðalsins.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA