Askja innkallar Sprinter vegna ljósrofa
09.09.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 21 Mercedes-Benz Sprinter bifreiðar af árgerð 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er fyrir því að þegar ljósrofanum er snúið of hratt þá geti birtan í afturljósunum minnkað, jafnvel slokknað. Viðgerð fellst í uppfærslu á stjórnboxi og tekur um það bil hálftíma.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.