Fara yfir á efnisvæði

Dagsektir lagðar á dekkjaverkstæði

11.09.2019

Neytendastofa gerði könnun í aprílmánuði 2019, á upplýsingagjöf dekkjaverkstæða. Skoðaðar voru vefsíður 15 dekkjaverkstæða á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin snéri að ástandi verðmerkinga á vefsíðum fyrirtækjanna þar sem skylt er að gefa upp verð bæði þar sem þjónusta er kynnt og seld. Þessu til viðbótar var kannað hvort allar tilskyldar upplýsingar um dekkjaverkstæðin kæmu fram á vefsíðunum. Könnun Neytendastofu leiddi í ljós að ekkert dekkjaverkstæði uppfyllti öll þau skilyrði sem lög og reglur gera til upplýsingagjafar um þjónustuna. Neytendastofa upplýsti dekkjaverkstæðin í framhaldi um þær skyldur sem á þeim hvíla og fór fram á úrbætur.
Um miðjan maímánuð 2019 kannaði Neytendastofa aftur vefsíður dekkjaverkstæðanna. Kom þá í ljós að einungis eitt dekkjaverkstæði hafði gert viðeigandi úrbætur. Var því ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að ná fram úrbótum. Í kjölfarið var ítrekuð krafa um úrbætur.
Neytendastofa hefur nú lokið ákvörðunum um dagsektir gagnvart fjórum dekkjaverkstæðum sem ekki hafa svarað ítrekuðum bréfum stofnunarinnar.
Ákvarðanirnar má nálgast hér.

TIL BAKA