Fara yfir á efnisvæði

IKEA innkallar bláa og rauða MATVRÅ smekki

30.09.2019

Fréttamynd
Neytendastofa vekur athygli á innköllun IKEA bláum og rauðum MATVRÅ smekkum sem seldir eru 2 í pakka. Samkvæmt tilkynningu IKEA er viðskiptavini sem eiga þessa vöru hvattir til að skila henni til IKEA og fá hana endurgreidda að fullu. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu. 

Í tilkynningunni kemur fram að vöruöryggi sé gríðarlega mikilvægt . Vörurnar séu prófaðar og eiga að standast allar viðeigandi reglugerðir og staðla. Þrátt fyrir það hafa okkur borist tilkynningar um að tölurnar á MATVRÅ smekkum geti losnað af og valdið köfnunarhættu.

„Öryggi viðskiptavina er forgangsmál hjá IKEA og því höfum við ákveðið grípa til fyrirbyggjandi aðgerða og innkalla bláa og rauða MATVRÅ smekki. Smekkir sem bera sama nafn, MATVRÅ, og eru mynstraðir í grænum og gulum lit eru samt sem áður öryggir í notkun þar sem bæði hönnun og efnið sem notað er í þá er annað.“ segir Emelie Knoester, viðskiptastjóri hjá IKEA of Sweden

Hægt er að skila MATVRÅ smekkunum í IKEA verslunina og fá þá endurgreidda að fullu. Ekki er nauðsynlegt að sýna kvittun til að fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri í síma 520 2500 og á IKEA.is.

TIL BAKA