Volvo innkallar 7 FH vörubifreiðar
20.11.2019
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi 7 Volvo FH vörubifreiðar af árgerð 2018.
Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að sjálfvirkar útherslur á bremsudælum virki ekki sem skyldi.
Viðkomandi bifreiðareigandum var tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.