Fara yfir á efnisvæði

Booking.com samþykkir að gera breytingar á viðskiptaháttum sínum

27.12.2019

Neytendastofa vill vekja athygli á fréttatilkynningu frá framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins um samkomulag sem gert hefur verið við Booking.com. Í tilkynningunni kemur fram að samkomulagið feli í sér að Booking.com muni fara að kröfum framkvæmdarstjórnarinnar og neytendayfirvalda í Evrópu um að bæta upplýsingar í tengslum við kynningar á tilboðum, afsláttum og verði.

Booking.com hefur fallist á að gera eftirfarandi breytingar á viðskiptaháttum sínum ekki seinna en 16. júní 2020:

    • kynna á greinargóðan hátt fyrir neytendum að fullyrðingar eins og „aðeins eitt herbergi laust“ eigi einungis við um bókunarsíðuna Booking.com;
    • hætta að kynna tímabundin tilboð ef sama verð gildir eftir að tilboði lýkur;
    • gera skýrar grein fyrir því hvernig leitarniðurstöðum er raðað og hvort þjónustuveitandinn hafi greitt Booking.com sérstaklega fyrir að birtast ofarlega í leitarniðurstöðum;
    • tryggja að ljóst sé hvenær lægra verð er byggt á breyttum aðstæðum (t.d. eftir árstíð) en ekki kynna slík verð sem afslátt;
    • tryggja að þegar þjónusta er kynnt á afslætti sé um raunverulega verðlækkun að ræða, t.d. með því að veita upplýsingar um venjulegt verð;
    • sýna á greinargóðan hátt endanlegt verð sem neytandinn þarf að greiða (innifalið í því eru öll óumflýjanleg gjöld, s.s. skattar og önnur opinbergjöld);
    • raða fullbókuðum gistingum í leitarniðurstöðum á þann hátt sem samræmist leitarskilyrðunum;
    • tilgreina sérstaklega hvort umrædd þjónusta teljist sem atvinnustarfsemi eða sé veitt af einstaklingi.

Í kjölfarið munu neytendayfirvöld í Evrópu kanna hvort Booking.com hafi gert viðeigandi breytingar í samræmi við ofangreint. Einnig munu neytendayfirvöld í Evrópu kanna starfsemi annarra stórra ferðaþjónustubókunarsíða.

Lesa má fréttatilkynninguna í heild sinni hér:

https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_19_6812

 


TIL BAKA