Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið ASKJA innkallar 77 KIA bifreiðar

08.01.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 77 KIA Sorento bifreiðar af árgerð 2019 og 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hugbúnaðarvilla í MFE myndavél (Muliti Function Camera) gæti valdið truflunum í öryggisbúnaði bílsins

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA